Efling hins megnuga sjálfs - kjaramál - sjálfbærnihæf einstaklingsmiðuð viðmið.

Kjör þeirra sem minnst mega sín í okkar landi - í fullu starfi – hvað eiga þeir einstaklingar ekki að geta gert eða veitt sér og fjölskyldu sinni í dag?

Margt er það í verklagi mannsins, fasi og framkomu sem gefist hefur vel í aldanna rás í einhverjum skilningi í hinu stóra samhengi hlutanna. Upphafleg umsögn um að eitthvað hafi gefist vel mótast m.a. af þeim valkostum sem voru í boði þá umsögnin var veitt. Og mótast jafnfram af því viðmiði sem viðhaft var við veitingu umsagnarinnar. Hafi eitthvað gefist vel undir Lítil umgjörð á nöglum einhverjum kringumstæðum er maðurinn líklegur til að viðhafa hið sama aftur ef viðkomandi metur/telur að sambærilegar forsendur séu til staðar nú og þegar umsögnin var veitt. Umsögnin þarf ekki að byggja á hlutlægum samanburði við annað verklag til að maðurinn hneigist til að viðhafa sama verklag aftur og aftur. Nú kann svo að vera að ýmislegt hafi breyst í tímans rás frá beitingu umrædds verklags og samhliða að ákvörðun um beitingu verklags hvíli á herðum eins eða fárra aðila. Efling hins megnuga sjálfs, í hinu stóra samhengi hlutanna, byggir að takmörkuðu leiti á því að gera hið sama aftur og aftur þótt geta/vald sé til staðar.  Oftar en ekki er þörf á sértækri greiningu aðstæðna og leggja faglegt mat á fjóra valkosti – gera meir af einhverju, minna af einhverju, hætta einhverju, eða gera eitthvað nýtt.

 Kjaraviðræður SA og Eflingar eru áhugavekjandi um margt. Sú umgjörð sem Eflingu er ætlað að nota á vegferð sinna skjólstæðinga til hagsældar, er ekki að öllu leiti sú hin sama og aðrir samningsaðilar í landinu fá að nýta sínum skjólstæðingum í vil. Umgjörð Eflingar hefur ekki verið ætlað að geta nýtt vetrardekk á sinni vegferð til framfara og mörgum óbærilegt til þess að hugsa að þau fjölmörgu litlu hjól atvinnulífsins í umferð í dag eru í boði með nagladekkjum.

Kjör þeirra sem minnst mega sín í okkar landi - í fullu starfi – hvað eiga þeir einstaklingar ekki að geta gert eða veitt sér og fjölskyldu sinni í dag?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Vilhjálmsson

Höfundur

Einar Vilhjálmsson
Einar Vilhjálmsson

Mottó: Efling hins megnuga sjálfs.                   
e.vilhjálmsson@gmail.com
S. 786-1020
Mannskepnan er mögnuð vera, man í sanskrít merkir hugur. Læt það versta alveg vera, veit þá mér ei brestur dugur. 081008

Nýjustu myndir

  • Mynd sem breytti Vietnamstríðinu
  • kim phuc phan thi 1 0f7e31f4825f4b6395b37744b3cc3264
  • 52419989986 32debd4cfa k (1)
  • 100 metan
  • Þrautseigja Shutterstock 613401872

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband