ÚFFFF!! RÚV fréttir kl.18:00 í dag. Hversu upplýstir og ígrundandi eru viðmælendur fréttastofunnar.

Umræða um skuldbindingar um kolefnisjöfnun íslensku þjóðarinnar - markmiðið að þjóðin verði óháð jarðefnaeldsneyti á Íslandi árið 2050 . Hversu upplýstir og ígrundandi eru viðmælendur fréttastofunnar. Skuldbindingar íslensku þjóðarinnar í loftslagsmálum lúta að því að draga hlutfallslega sem mest úr hlýnun jarðar af mannavöldum á Íslandi - Í RAUN. Það eitt og sér að draga úr brennslu á jarðefnaeldsneyti þarf alls ekki að draga úr hlýnun jarðar Í RAUN. Grundvallar atriðið er - hvað kemur í staðinn þegar rætt er um samgöngur á landi, sjó og í lofti? Sú lausn í samgöngum sem blasað hefur við lengi og skilað getur hlutfallslega mestum árangri fyrir íslenska þjóð næstu áratugina felur m.a. í sér að stórauka framleiðslu á metaneldsneyti (nútíma metani, lífmetani og rafmetani)og nýta það eldsneyti í stigvaxandi mæli á núverandi vélknúin farartæki.METAN Sjálfbær og hnattvæn ávinningur

Já það kostar ekki nema um 1500 EUR að flytja inn búnað til að uppfæra farartæki með brunahreyfli þannig að það geti einnig nýtt metaneldsneyti í samgöngum. Framboð á slíkum farartækjum mun fyrirsjáanlega verða mikið í heimsþorpinu langt inn i þessa öld - ef ekki alla öldina. Með þessu hætti getur þjóðin slegið margar flugur með samtakamætti - landi og lýð til hagsældar. Stóraukin metanvæðing hefur í för með sér hlutfallsleg óveruleg notkun á gjaldeyrisforða þjóðarinnar í samanburði við rafhlöðuvæðinguna og þar með hagkvæmari viðskiptajöfnuður, sterkari króna, minni verðbólguþrýsting og lægri vextir í samanburði við áhrifin af stórefldum innflutning á rafhlöðufarartækjum sem kosta yfir 2x meira í gjaldeyri en farartæki með brunahreyfli. Og þar fyrir utan veita refhlöðufarartæki ekki ótvíræðan ávinning í að draga hlutfallslega úr hlýnun jarðar af mannavöldum í heiminum. Og fyrirsjáanlega svo einnig á Íslandi þótt rafmagnsframleiðslan sé græn. Undantekningin á Íslandi kann að vera ef um er að ræða stórfelda notkun farartækisins á ári - þ.e. margfalt meiri notkun en sem nemur meðal akstursvegalengd fólksbíls á Íslandi sem samkvæmt Umferðastofu eru um 14.700 km/ár. Þess gætir enn í umræðunni um rafhlöðuvæðingu fólksbíla í landinu að bílarnir spari þjóðinni gjaldeyri vegna minni innflutnings á jarðefnaeldsneyti- jafni fljótlega hinn mikla gjaldeyriskostnað vegna innflutnings á rafhlöðubílum. Hið rétta er að meðal rafhlöðufólksbíllinn nær ekki að gjaldeyrisjafna sig á líftíma sínum  í samanburði við sambærilegan bíl með brunahreyfli.

Meðaltalstölur: Akstur 14.700 km/ár. Blandaður akstur 6L/100km. Gjaldeyriskostnaður 1L/bensín sem hlutfall af dæluverði um 33%. DÆMI: Lítrar af bensínmi á ári = 1029L, Dæluverð 330kr/L og því gjaldeyrishlutinn 110kr/L. Gjaldeyrissparnaður á ári ( meðal fólksbíll) = 110kr/L x 1029L/ár = 113.190kr/ár. Ef kostnaður í gjaldeyri vegna innflutnings á rafhlöðufólksbíl er 2 m.kr hærri en fyrir sambærilegan bíl með brunahreyfli þá gildir eftirfarandi: 2.000.000 kr/bíll deilt með 113.190 kr/bíll á ári = 17,67 ár. Það tæki sem sé yfir 17 ára fyrir rafhlöðubílinn að gjadeyrisjafna sig. Hvað þá ef mismunurinn er  3 m.kr eða meira en það. Og þá allt annað ósagt varðandi þjóðhagfræðilegan afleiddan kostnað þjóðarbúsins og heimilanna vegna útburðar á gjadeyri þjóðarinnar. 

Rafhlöðuvæðingin í landsamgöngum ætti því í dag að einskorðast við stórnotendur á vegakerfinu og farartæki í notkun innanhúss s.s. í lagerhúsnæði eða kerskálum. Kallið er orði hávært eftir stóraukinni notkun á sjálfbærri framleiðslu á umhverfisvænu metaneldsneyti enda sú vegferð þegar hafin og fjárhagslega gerleg fyrir samhenta þjóð. Mikið rétt, stóraukin metanvæðing skapar dreifðan ávinning þjóðinni og sveitarfélögum landsins í vil – stóraukin rafhlöðuvæðing samgangna í landinu skapar fyrirsjáanlega hið gagnstæða – og hlutfallslega svo á flestum sviðum eins og blasað hefur við á þessari öld. Svíþjóð er fyrirmynd innan Evrópu um markvissa uppbyggingu á aukinni metanvæðingu í samgöngum. Viðspyrnu gegn stóraukinni metanvæðingu á Íslandi er vissulega að finna - oft á tímum er hún fyrst og fremst flottræfilsleg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Allar þessar tölur hjá þér eru aukaatriði.

Tilgangurinn með kolefnis-öllu er að gera venjulegt fólk að öreigum, helst svo það svelti í massavís.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.8.2023 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Vilhjálmsson

Höfundur

Einar Vilhjálmsson
Einar Vilhjálmsson

Mottó: Efling hins megnuga sjálfs.                   
e.vilhjálmsson@gmail.com
S. 786-1020
Mannskepnan er mögnuð vera, man í sanskrít merkir hugur. Læt það versta alveg vera, veit þá mér ei brestur dugur. 081008

Nýjustu myndir

  • Mynd sem breytti Vietnamstríðinu
  • kim phuc phan thi 1 0f7e31f4825f4b6395b37744b3cc3264
  • 52419989986 32debd4cfa k (1)
  • 100 metan
  • Þrautseigja Shutterstock 613401872

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband