28.4.2009 | 15:50
Metanvæðing í Evrópu : Spænskir atvinnurekendur svara kalli nútímans og sameinast um stóraukinn umhverfisvænan akstur – METAN - er Ísland að hugsa?
Spænskir atvinnurekendur svara kalli nútímans og staðfestu á fundi í Madrid þann 14. apríl áform um að stórauka fjölda bíla í notkun sem ganga fyrir umhverfisvænu eldsneyti, metani.
Umhverfisstofa Madridborgar kynnti fyrir ári síðan vettvang og átak í umhverfismálun undir heitinu ,, Foro Pro Clima Madrid ´´. Markmiðið var m.a. að skapa umræðu og efla vakningu til umhverfisvænnar nýsköpunar og aðgerða gegn mengun bifreiða í borgum. Fjöldi fyrirtækja í mismunandi rekstri svöruðu kallinu og gáfu nýverið út sameiginlega yfirlýsingu um áform sín um að stórauka fjölda umhverfisvænna ökutækja í bílaflota sínum á næstu misserum og í framtíðinni. Hér má nefna fyrirtæki í matvælaiðnaði, fjarskiptaþjónustu, byggingariðnaði, flutningaþjónustu og fleira.
Ráðamenn í Madríd eru ekki þeir einu sem efna orð sín þegar kemur að umhverfisvænu vali á bílum og eldsneyti. Metanbílar í opinberri þjónustu á Spáni eru yfir 1400 í dag og fer hratt fjölgandi rétt eins og afgreiðslustöðum sem eru nú alls 35. Með notkun á metan bifreiðaeldsneyti minnkar umtalsvert losun á skaðlegum gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið og hér er eftir miklu að slægjast á ársgrundvelli fyrir Spánverja sem aðrar þjóðir.
Með metanvæðingunni sjá Spánverjar fram á að geta létt úr andrúmsloftinu 23 tonnum af CO ( kolmónoxíð) , 300 tonnum af NOx ( köfnunarefnisoxíð) og 17 tonnum af sóti ( hærri kolvetni) með gríðarlegum umhverfislegum ávinningi. Þar fyrir utan sjá þeir fram á minni losun á CO2 (koltvíoxíð) sem nemur 7000 tonnum á ári auk gríðarlegs fjárhafslegs ávinnings vegna minni notkunar á hefðbundnu eldsneyti svo tugum milljóna lítra skipti. Barcelona, Valencia og yfir 15 aðrar borgir njóta nú þegar ávinningsins af notkun á metan eldsneyti.
Hvað erum við Íslendingar að hugsa með okkar frábæru framleiðslu á metani hjá SPORU bs, sem er í eigu sveitarfélaganna, og alla okkar getu til að stórauka framleiðsluna og notkun á metani með miklum samfélagslegum ávinningi.
Sjá nánar: www.gnv2009madrid.com
www.metan.isFlokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Facebook
Um bloggið
Einar Vilhjálmsson
Nýjustu færslur
- Er bensínbílum að fjölga hlutfallslega séð? Fátt er svo með ö...
- Hryllingur stríðs - hefur aukið áreiti og gagnsæi deift tilfi...
- VEL GERT SORPA - heimsklassa framleiðsla á metaneldsneyti úr ...
- 2024 Til lukku með nýtt almanaks- og bætingaár - stöðugt hærr...
- Metan er málið og hefur blasað við um áratuga skeið - og börn...
Athugasemdir
Góð pæling - eftir hverju eru menn að bíða hér heima?
Ægir Sævarsson (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 19:58
Það væri mikil mistök ef við færum að veðja á metan sem orkugjafa á bíla og önnur farartæki. Hjá okkur Íslendingum verður það raforkan. Það er orkan sem við munum eiga nóg af framvegis. Það eru stórstígar framfarir í rafhlöðum fyrir bíla og fleiri og fleiri bílaframleiðendur veðja á raforku. Við megum ekki fara að veðja á margskonar orkugjafa, hvort sem er metan, vetni eða aðrar gastegundir kallar það á rándýrt dreifikerfi. Raforkan er allsstaðar, á hverjum stað, á hverju heimili. Það þarf ekki að verja neinum fjármunum í dreifikerfi, það er þegar til og orkan er einnig til.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 28.4.2009 kl. 20:45
Takk fyrir þetta Sigurður. Það er mikivægt að skoða allar hliðar við stefnumörku sem þessa og ljóst að mismunandi orkugjafar verða í boði í flestum löndum og mismunandi eftir markaðssvæðum hver verður ríkjandi á hverju svæði fyrir sig. Hér ræður mestu auðlindir og aðstaða hvers lands fyrir sig, mikilvægi þess að mati þjóðanna að vera sjálfbær um öflun eldsneytis og þufa ekki að ráðstafa dýrmætum gjaldeyri til að kaupa eldsneyti sem unnt er að framleiða með ódýrari hætti á heimamarkaði. Margt annað mætti nefna sem ég hef nefnt í fyrri færslum og sjálfsagt að endurtaka seinna. Heildar rekstrarkostnaður rafmagnsbílsins er ekki sjálfgefið hagfelldastur, þvert á móti. Þar fyrir utan hafa menn áhyggjur af því að færa einokunarstöðu olíuríkja yfir til þeirra fáu rikja sem framleitt geta liþíum fyrir rafhlöðurnar. Umhverfisávinningur er þar fyrir utan mun meiri með metani unnu úr lífrænu efni og sjálfbærnin vigtar víð þungt. Svíar eru búnir að taka afstöðu með metani og Norðmenn eru að auka dreifikerfi sitt fyrir metan einnig svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að framleiða metan í dag og engin hætta því samfara að stórauka framleiðslu og fjölga afgreiðslustöðum , þjóðhagslegur ávinningur er það margþættur - meira síðar
Einar Vilhjálmsson (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 21:46
mjog áhugavert og ég er alveg sammála! Endilega haltu áfram ad reyna ad sannfaera rádamenn um ágaeti metans
Kristín H ildur Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.