2024 Til lukku með nýtt almanaks- og bætingaár - stöðugt hærra höldum til að sjá, hæð sem munum ná.

Áskoranir þjóðarinnar hverju sinni er hollt að skoða í samanburði við áskoranir fyrri kynslóða í okkar landi - svo ekki sé talað um áskoranir þorra þjóða i heimsþorpinu í dag. Við eigum, heilt yfir, mikið að þakka framgöngu okkar fulltrúa við stýrið á öllum sviðum samfélagsins til sjávar og sveita - fyrr sem nú. Víða blasa við kunnuglegar áskoranir og aðrar nýjar. Gott er að vera Íslendingur þá mikið liggur við. Takk fyrir þrautseigju og hugarfar forfeðra okkar og mæðra. Gleðilegt bætingár. 

Þrauseig er lund á landi ísa nú,    lydveldisborn stor 200619
lífsins þrautir leysum ég og þú.
Stundum lúin ávallt lífsglöð jú,
leikum, dönsum vinstri hægri snú.

Stundir góðar gerum sérhvern fund,
gremja á ei ból í vorri lund.
Hik er aldrei húsbóndi um stund,
hærra færumst yfir dalsins grund.   

Við eigum trú sterkar stoðir - já,
styrkum fótum - á.
Stöðugt hærra höldum til að - sjá
hæð sem við munum - ná.

Mótlætinu ávallt mætum við,  
máttur æðri blundar oss við hlið.
Sárin gróa og brotin eftir bið,
bæting heitir það að góðum sið.

Hraðar, lengra, hærra er vort fag,
hver einn hefur á því eigin brag.
Taktur, styrkur, tónn og sama lag,
textinn gerir árás sérhvern dag.

Við eigum trú sterkar stoðir – já....


Það góða sem gert er nóg er til,
gæðin nýtum þjóðinni í vil.
Fámennið brýnir og skerpir skil,
skapið sem þarf til að brúa bil. 

Þótt það taki tíu sinnum ár,
tára regn og mikið hugarfár,
staðföst hærra ávallt höldum klár,
hvert sem reynist lífsins þrautasár.

Við eigum trú sterkar stoðir - já ....

ev.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Vilhjálmsson

Höfundur

Einar Vilhjálmsson
Einar Vilhjálmsson

Mottó: Efling hins megnuga sjálfs.                   
e.vilhjálmsson@gmail.com
S. 786-1020
Mannskepnan er mögnuð vera, man í sanskrít merkir hugur. Læt það versta alveg vera, veit þá mér ei brestur dugur. 081008

Nýjustu myndir

  • Mynd sem breytti Vietnamstríðinu
  • kim phuc phan thi 1 0f7e31f4825f4b6395b37744b3cc3264
  • 52419989986 32debd4cfa k (1)
  • 100 metan
  • Þrautseigja Shutterstock 613401872

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband