Metanvæðing bílaflotans - miklir þjóðarhagsmunir - arðbært , umhverfisvænt og atvinnuskapandi

Ég þakka samtöl,tölvupósta og góðar ábendingar sem mér hafa borist í tengslum við texta minn í síðasta bloggi um metanvæðingu íslenska bílaflotans, sjálfbært Ísland í eldsneytismálum . Mikið rétt, ávinningur metanvæðingarinnar er mun umfangsmeiri og margþættari en ég nefndi í mínu stutta hugflæði og sannarlega vert að taka saman og kynna á næstu dögum heildarmynd þessa raunhæfa þjóðþrifaátaks.

Bent hefur verið á, að einn sá stóri vandi sem íslenskt samfélag glímir við í dag og muni þurfa að glíma við næstu Ólympíutímabilin ( þrjú hið minnsta, 12 ár) snúist um að afla meira af gjaldeyri en við þurfum nauðsynlega að ráðstafa sem þjóð. Í dag skilst mér að þjóðin ráðstafi  um 20 milljörðum á ári af gjaldeyri til innflutnings á bensíni og dísilolíu fyrir bílaflotann og annað eins fyrir skipaflotann.  Í  framtíðinni getum við sparað okkur þessar greiðslur og erum reyndar þegar byrjuð á því með frábærum árangri, enda hefur þróun og framleiðsla á metan eldsneyti verið virk hér á landi síðastliðin tíu ár og vopnin til fyrir þjóðarátak. Við framleiðum metan eldsneyti í Reykjavík í dag og getum gert það í öðrum landshlutum einnig með miklum heildarávinningi fyrir landsbyggðina og samfélagið í heild.

Með samtakamætti einstaklinga, fyrirtækja og hins opinbera getum við stigið afgerandi skref strax á morgun, skapað störf nú í sumar og lagt grunn að sjálfbærni landsins í eldsneytismálum með miklum fjárhagslegum og umhverfisvænum ávinningi fyrir íslenskt samfélag. Ávinningur okkar allar mun skila sér strax á þessu ári, enn frekar næstu árin svo ekki sé talað um ávinninginn fyrir afkomendur okkar sem lánað hafa okkur þau forréttindi að greina aðstæður og taka ákvarðanir á þessu landi.

Ljóst er að verkefni sem þetta ætti að vera á borði allra stjórnmálamanna í dag í umræðu um einstakt tækifæri til atvinnu-og nýsköpunar á þessu ári, næstu misserin og til framtíðar litið. Sumir kynnu að ætla að hér sé um draumsýn að ræða sem eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum, sé þjóðhagfræðilega óhagfelld, óframkvæmanleg og/eða íslensku samfélagi um megn að framkvæma.  Svo er alls ekki. Ég leyfi mér að fullyrða, með fyrirvara um að annað eins raunhæft og hagfellt fjöregg finnist, að ekkert verkefni á sviði nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar uppfylli með jafn afgerandi hætti þau eftirsóknarverðu skilyrði sem þurfa að vera til staðar svo réttlæta megi þjóðarátak um stefnumörkun, breytingar og aðgerðir - strax í dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég er hlyntur því að keyra á prumpi. Sjálfur nota ég matarolíu sem hluta af eldsneytisþörf minni og bíllinn mengar minna á því eldsneyti.

Offari, 18.4.2009 kl. 14:50

2 Smámynd: Einar Vilhjálmsson

OFFARI, takk fyrir stuðninginn við málstaðinn. Þú ert á réttri leið og ferð ekki offari þótt þú takir þátt í metanvæðingu landsis. Hvað varðar prumpið þá eru kýrnar sem og önnur jórturdýr fyrst og fremst með góða frameiðslugetu á metni. Í Svíþjóð eru bóndabýli sem nýta þennan orkugjafa til rafmagnsframleiðslu og sem eldsneyti á vinnuvélar - eru sjálfbær í þessum efnum - flottir.

Einar Vilhjálmsson, 18.4.2009 kl. 16:51

3 Smámynd: Bjarni G. P. Hjarðar

Ég keyri um á VW Touran sem brennir metan og skilar því eingöngu koltvísýring og vatni af sér (gosi?) Til vara er 10 lítra bensíntankur, sem ég hef reyndar aldrei þurft á að halda. Mér skilst að bíllinn ræsi sig á bensínu þegar kalt er í veðri og skipti svo sjálfvirkt yfir á metan, en ég hef svo sem aldrei tekið eftir þeirri skiptingu.

Bjarni G. P. Hjarðar, 20.4.2009 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Vilhjálmsson

Höfundur

Einar Vilhjálmsson
Einar Vilhjálmsson

Mottó: Efling hins megnuga sjálfs.                   
e.vilhjálmsson@gmail.com
S. 786-1020
Mannskepnan er mögnuð vera, man í sanskrít merkir hugur. Læt það versta alveg vera, veit þá mér ei brestur dugur. 081008

Nýjustu myndir

  • Mynd sem breytti Vietnamstríðinu
  • kim phuc phan thi 1 0f7e31f4825f4b6395b37744b3cc3264
  • 52419989986 32debd4cfa k (1)
  • 100 metan
  • Þrautseigja Shutterstock 613401872

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband