Fréttir af fjölgun bensínbíla gæti reynst hlutfallslega umhverfisvænn kostur á þessari öld og sérstakleg svo ef við virkjum að nýju þá þekkingu og reynslu í landinu í að uppfæra bensínsbíla í tvíorkubíla sem geta þá einnig nýtt íslenskt metan á akstri. Það kostar þjóðina um 400 EUR í gjaldeyri að uppfæra einn bensínbíl í tvíorkubíl og þekking og reynsla til í landinu - Borgarholtsskóli ætti að fá tækifæri til að sinna sínu þjóðþrifaverkefni að nýju og af fullum krafti.
Og þá samhliða hafið átak í að framleiða íslenskt metaneldsneyti enn frekar m.a. með því að koma með í land kvarnaðan ómarkaðshæfan lífmassa af miðunum. Þar fyrir utan er mýgrútur af tækifærum til að framleiða metaneldsneyti úr lífrænum úrgangi og öðrum lífmassa í landinu sem sannarlega eykur sjálfbærni landsins og stuðlar samhliða að hlutfallslega meira orkukerfisöryggi til vélknúinna samgangna en þeir valkostir þar sem orkukerfi samgöngutækja grundvallast á rafhlöðum.
Hvað varðar framleiðslu á metaneldsneyti þá gætum við aldeilis slegið margar flugur í einu höggi í loftslags- og orkuöryggismálum með því að efna til þjóðarátaks um að stóraukna metanframleiðslu víða um land og hafið innflutning á metaneldsneyti sem eitt og sér skapar margþættan ávinning hlutfallslega sé m.v. innflutning og brennslu á bensíni, dísilolíu og svartolíu. Dæmi, Svíar blanda jarðgasi (metani ,CH4) við metaneldsneyti sem framleitt er úr margvíslegum lífmassa (50/50) og bjóða þannig upp á hlutfallslega besta kostinn til vélknúinna samgangan hvað varðar loftslagsmál, sjálfbærni og orkuöryggi og stuðlar samhliða að tækifærum til atvinnuskörunar vítt og breidd um Svíþjóð.
Í hinu stór samhengi í loftslagsmálum blasir við að mikill ótti, samfara hlýnun jarðar, stafar af mögulegri losun á metaneldsneyti sem blundar í frosnum jarðvefi víða um heim. Heimsbyggðin gæti nú aldeilis gert komandi kynslóðum gagn með því að skapa heimsátak í því að hefja markvist aftöppun á metaneldsneyti sem blundar á sífrera-svæðum og nýta á ökutæki, í bland við aðra metanframleiðslu á yfirborði jarðar, og skipta út fyrir brennslu á bensíni og olíum. Minnka svo jafnt og þétt notkun á jarðgasi í takt við sjálfbæra líf-metan-framleiðslu. Og getum því að fullu tæki með brunahreyfli sem verða með okkur í einu eða öðru formi langt inn í þessa öld ef ekki alla öldina - enginn smá hlutfallslegur umhverfislegur, loftslagslegur, efnahagslegur og samfélsagslregur ávinningur samfara því einu og sér.
Forðumst að markaðssetja þörf fyrir aukna grænorkuframleiðslu á forsendum rafhlöðuvæðingar í samgöngum. Aukin grænorkuframleiðsla til rafeldsneytisframleiðslu er verkefni líðandi stundar sem nýtast mun umhverfinu og komandi kynslóðum með hagkvæmum hætti á þessari öld.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.5.2024 kl. 23:17 | Facebook
Um bloggið
Einar Vilhjálmsson
Nýjustu færslur
- Er bensínbílum að fjölga hlutfallslega séð? Fátt er svo með ö...
- Hryllingur stríðs - hefur aukið áreiti og gagnsæi deift tilfi...
- VEL GERT SORPA - heimsklassa framleiðsla á metaneldsneyti úr ...
- 2024 Til lukku með nýtt almanaks- og bætingaár - stöðugt hærr...
- Metan er málið og hefur blasað við um áratuga skeið - og börn...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.