7.1.2024 | 00:56
2024 Til lukku með nýtt almanaks- og bætingaár - stöðugt hærra höldum til að sjá, hæð sem munum ná.
Áskoranir þjóðarinnar hverju sinni er hollt að skoða í samanburði við áskoranir fyrri kynslóða í okkar landi - svo ekki sé talað um áskoranir þorra þjóða i heimsþorpinu í dag. Við eigum, heilt yfir, mikið að þakka framgöngu okkar fulltrúa við stýrið á öllum sviðum samfélagsins til sjávar og sveita - fyrr sem nú. Víða blasa við kunnuglegar áskoranir og aðrar nýjar. Gott er að vera Íslendingur þá mikið liggur við. Takk fyrir þrautseigju og hugarfar forfeðra okkar og mæðra. Gleðilegt bætingár.
Þrautseig er lund á landi ísa nú,
lífsins þrautir leysum ég og þú.
Stundum lúin ávallt lífsglöð jú,
leikum, dönsum vinstri hægri snú.
Stundir góðar gerum sérhvern fund,
gremja á ei ból í vorri lund.
Hik er aldrei húsbóndi um stund,
hærra færumst yfir dalsins grund.
Við eigum trú sterkar stoðir - já,
styrkum fótum - á.
Stöðugt hærra höldum til að - sjá
hæð sem við munum - ná.
Mótlætinu ávallt mætum við,
máttur æðri blundar oss við hlið.
Sárin gróa og brotin eftir bið,
bæting heitir það að góðum sið.
Hraðar, lengra, hærra er vort fag,
hver einn hefur á því eigin brag.
Taktur, styrkur, tónn og sama lag,
textinn gerir árás sérhvern dag.
Við eigum trú sterkar stoðir já....
Það góða sem gert er nóg er til,
gæðin nýtum þjóðinni í vil.
Fámennið brýnir og skerpir skil,
skapið sem þarf til að brúa bil.
Þótt það taki tíu sinnum ár,
tára regn og mikið hugarfár,
staðföst hærra ávallt höldum klár,
hvert sem reynist lífsins þrautasár.
Við eigum trú sterkar stoðir - já ....
ev.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.12.2024 kl. 23:15 | Facebook
Um bloggið
Einar Vilhjálmsson
Nýjustu færslur
- Er bensínbílum að fjölga hlutfallslega séð? Fátt er svo með ö...
- Hryllingur stríðs - hefur aukið áreiti og gagnsæi deift tilfi...
- VEL GERT SORPA - heimsklassa framleiðsla á metaneldsneyti úr ...
- 2024 Til lukku með nýtt almanaks- og bætingaár - stöðugt hærr...
- Metan er málið og hefur blasað við um áratuga skeið - og börn...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.