Skólahreysti fær frábærar viðtökur í Finnlandi - 78.000 finnsk ungmenni tóku þátt í Skólahreysti í Finnlandi á þessu ári og úrslitakeppnin fer fram í dag.

Skólahreysti er íslenskt  fjölskylduframtak sem hefur um árabil höfðað til fólks á öllum aldri með einstökum hætti og ljóst að  frumkvöðlastarf Andrésar Guðmundssonar og Láru Hallgrímsdóttur í Mosfellsbæ hefur haft mikil og jákvæð áhrif og okkar mann-og samfélag.  Og með þeim hætti að eftir hefur verið tekið víða um heim. Fyrir tveimur árum ákvað finnska íþróttasambandið að innleiða Skólahreysti í grunnskólana þar í landi og árangurinn verið einstakur á þeirra mælikvarða, einnig. Á þessu ári tóku um 78.000 finnskir grunnskólanemar þátt í Skólahreystiverkefni finnska íþróttasambandsins í yfir 300 grunnskólum undir stjórn 800 íþróttakennara.  Finnska úrslitakeppnin fer fram í dag. 

Skólahreysti komin til að veraAð sögn Andrésar Guðmundssonar eru útivellir fyrir Skólahreysti alls 8 á Íslandi í dag og fyrirspurnir borist frá fjölda sveitarfélaga sem fyrirhuga að koma upp Skólahreystivelli í sínu byggðarlagi. Þá hefur eftirspurn eftir Framhaldhreysti fyrir eldri nemendur farið vaxandi og ljóst að Hreystivellir munu verða vel nýttir af hressu fólki á öllum aldri í framtíðinni. Mikil aukning hefur m.a. verði í eftirspurn eftir að fá færanlega  Skólahreystibraut á bæjarhátíðum og vinnustaðaviðburðum og ljóst að hagræðingin er mikil að því hafa Hreystivöll í heimabyggð. Þá hafa fyrirspurnir um Hreystivelli borist frá aðilum í ferðaþjónustu og arkitektastofum svo nokkuð sé nefnt.  Hreystivelli er að finna í Reykjavík (3), Garðabæ (1), Reykjanesbær (1), Sandgerði (1), Stykkishólmi(1) og Búðardal (1). Nýjasti völlurinn er við Laugardalslaugina í Reykjavík en þar verða námskeið í Sólahreysti í sumar.

 

Um þessar mundir eru þau Andrés og Lára að taka við skráningum á sumarnámskeið í Skólahreysti sem haldin verða við Laugardalslaug í Reykjavík fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára - sjá hér: Fyrsta námskeiðið hefst þann 10.júní.

Mikill er sómi Andrésar og Láru – innilega til hamingju með þessa einstöku útungun í Finnland,  Taisto SchoolPower, eins og Skólahreysti er nefnd það í landi.

 PS. Hér má sjá úrslitakeppnina á Íslandi 2013 – sjá hér 
Gaman verður að sjá samanburð á árangri nemenda milli landa – samanburð á landsmeðaltali í skólahreystiþrautum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að þessu. Glæsilegur árangur heima og heiman.

Freyr Ólafsson (IP-tala skráð) 24.5.2013 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Vilhjálmsson

Höfundur

Einar Vilhjálmsson
Einar Vilhjálmsson

Mottó: Efling hins megnuga sjálfs.                   
e.vilhjálmsson@gmail.com
S. 786-1020
Mannskepnan er mögnuð vera, man í sanskrít merkir hugur. Læt það versta alveg vera, veit þá mér ei brestur dugur. 081008

Nýjustu myndir

  • Mynd sem breytti Vietnamstríðinu
  • kim phuc phan thi 1 0f7e31f4825f4b6395b37744b3cc3264
  • 52419989986 32debd4cfa k (1)
  • 100 metan
  • Þrautseigja Shutterstock 613401872

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband